Pantaðu tímanlega

Afgreiðslutímar & Pantanir

Mánudagur til og með fimmtudegi:
Pantanir þarf að staðfesta með greiðslu fyrir kl. 14:00 á mánudögum til og með fimmtudögum ef vara á að afhendast daginn eftir.
Pantanir sem eiga að afhendast á mánudegi þarf að staðfesta með greiðslu fyrir kl. 14 á föstudögum.

Laugardagur og sunnudagur:
Til að fá vöru afhenta á laugardegi eða sunnudegi þarf að staðfesta pöntun með greiðslu fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Tímamörkin eru með fyrirvara um að ekki sé þegar lokað fyrir pantanir vegna anna.

Allar tertur frá Tertugalleríinu eru afgreiddar nýbakaðar. Afgreiðslufrestur undir venjulegum kringumstæðum er 2-3 sólarhringar. Hafa ber í huga að afgreiðslufresturinn getur lengst með skömmum fyrirvara og lokast fyrir þá daga í pöntunardagatalinu. Þegar gengið er frá pöntun þarf að velja á hvaða klst. er sótt til okkar í Tertugalleríið.


Afgreiðslutímar Tertugallerís eru eftirfarandi:

Virkir dagar kl. 8-14
Laugardagar kl. 9-12
Sunnudagar kl. 9-12