Bjóddu upp á marengstertu frá Tertugalleríinu í saumaklúbbnum

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Birtingarmynd saumaklúbba hefur verið mismunandi allt frá tilurð þeirra. Sumir af saumaklúbbunum hafa verið starfræktir síðan meðlimir þeirra sátu saman á skólabekk og því ljóst að ýmislegt hefur drifið á daga þeirra sem eru í saumaklúbbum.

Uppruna íslenskra saumaklúbba er erfitt að rekja en þeir virðast þó upphaflega hafa þróast út frá góðgerðaklúbbum, en með tímanum tekið á sig þá mynd sem við þekkjum í dag.

Marengsterta

Ýmiss konar veitingar er ómissandi þáttur þegar meðlimirnir í saumaklúbbnum hittast. Hjá Tertugalleríinu eigum við mikið úrval af tertum og kökum ásamt öðrum frábærum veisluveigum fyrir flest öll tilefni.

Leyfðu okkur hjá Tertugalleríinu að einfalda þér fyrirhöfnina í eldhúsinu. Kynntu þér úrvalið á tertum og kökum ásamt öðrum vinsælum veisluveigum og pantaðu eitthvað ljúffengt til að hafa á boðstólum næst þegar þú heldur saumaklúbb.

Marengsterta

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir útskriftarveislur. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →