Salötin frá Tertugalleríinu fyrir brauðtertugerðina

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Ef þið viljið spreyta ykkur áfram í brauðtertugerð fyrir fermingarveisluna erum við hjá Tertugalleríinu með tilbúin bragðgóð sælkerasalöt til að einfalda ykkur undirbúninginn. Sælkerasalötin koma í handhægum 1 kg umbúðum og er hægt að velja um þrjár tegundir.

Skinku-, túnfisk- eða rækjusalatið auðveldar þér fyrirhöfnina við brauðtertugerðina og við mælum með vinsælu rúllutertu- eða brauðtertubrauðunum frá Myllunni, sem fást í helstu matvöruverslunum.

Þar að auki eru sælkerasalötin fullkomin viðbót á veisluborðið með alls konar kexi og brauðtegundum.

Auðveldaðu þér fyrirhöfnina fyrir veisluna og pantaðu þitt uppáhalds sælkerasalat.

Skoðaðu úrvalið og nánari upplýsingar hér.

Pantið tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar fermingarveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þið pantið tímalega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →