Þú finnur ljúffengar fundarveitingar hjá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Er fundur framundan í vinnunni? Ef svo er þá getum við hjá Tertugalleríinu einfaldað þér fyrirhöfnina með bragðgóðum og fallegum veitingum. Snitturnar okkar er frábær hugmynd sem slær alltaf í gegn og það er vinsælt hjá fyrirtækjum að panta snittur þegar fundur er framundan. Þess heldur eru snitturnar tilvaldar fyrir öll tilefni og allir geta fundið sér eitthvað við hæfi hvort sem það er á fundinn, í veisluna, eða í árbítsboð með vinum og ættingjum.

Þú getur valið úr mörgum tegundum sem eru hver annarri gómsætari og snitturnar eru þægilegar til framreiðslu. Lágmarkspöntun eru sex snittur sömu tegundar og þær snittur og tapas snittur sem við bjóðum upp á eru roastbeefsnittarækjusnittakarrýsíldarsnittatapas snitta með tapas skinku og camembertostitapas snitta með hunangsristaðri skinku og piparostitapas snitta með salami og hvítlauksosti og tapas snitta með hunangsristaðri skinku og paprikuosti.

Rúllutertubrauðin okkar eru líka vinsæl og við bjóðum upp á tvær tegundir af rúllutertubrauðum, með skinku og aspas fyllingu og pepperoni fyllingu. Það eina sem þarf að gera er að sáldra ostinum sem fylgir með yfir rúllutertubrauðið og hita í ofni þar til osturinn er orðinn gullinnbrúnn.

Það er alltaf gott að huga að sætum veitingum með í leiðinni og við mælum eindregið með ljúffengum, og litríkum makkarónukökum. Makkarónukökurnar koma 35 stykki saman á bakka og eru með sítrónu-, saltkaramellu-, hindberja-, vanillu-, súkkulaði-, pistasíu-, kaffi- eða ástaraldinbragði.

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantaðu tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantir tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →