Þú færð ljúffengar veisluveigar fyrir útskriftarveisluna hjá Tertugalleríinu
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Sú árstíð er gengin í garð þar sem útskriftarveislur eru tíðar og við hjá Tertugalleríinu bjóðum upp á fjölbreytt úrval af fallegum og ljúffengum veisluveigum til að fullkomna veisluna þína.
Við mælum sérstaklega með marsípantertunum okkar, þær eru eins ljúffengar og þær eru glæsilegar og hægt er að prenta myndir á terturnar og setja á þær texta að eigin vali.
Marsípanterturnar eru með svampbotni, frómas-fyllingu og ávöxtum, prýddar fallegum sykur- og súkkulaðiskreytingum og eru fáanlegar í fjórum bragðtegundum; súkkulaði-frómas með kokteilávöxtum, jarðarberja-frómas með jarðarberjum, Irish Coffee-frómas með kokteilávöxtum og karamellu og Daim-frómas með kokteilávöxtum.
Form og stærðir marsípanstertanna eru fjölbreyttar og er hægt að fá þær fyrir 25 manns (27,5x35,5 cm), 30 manns (29x40,5cm) og 40 manns (34,5x43,5 cm).
Einnig er tilvalið að bjóða upp á kransaköku með marsípantertunni. Kransakökurnar okkar eru hátíðlegar og iðulega að finna á borðum þegar mikið stendur til og gefa veislunni virðulegan svip. Kransakökur Tertugallerísins eru ljúffengar, fagurlega skreyttar og á sérstaklega góðu verði.
Við bjóðum upp á nokkrar útfærslur af kransakökunni eins og ljúffenga og fallega skreytta sjö hringja kransakörfu fyrir 15 manns, eða öðruvísi 20 manna kransaskál skreytta með ferskum berjum og súkkulaði.
Svo er það sígilda og reisulega 30 manna kransakakan sem skreytt er með hvítum glassúr, ferskum berjum og súkkulaðiskrauti.
Tertugallerí býður upp á fjölbreytt úrval af fallegum og bragðgóðum veisluveigum fyrir útskriftarveisluna. Skoðaðu úrvalið hér og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn.
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!
Pantaðu tímanlega
Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar útskriftarveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímanlega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Afhending og ábyrgð
Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.
Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.
Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.
Deila þessari færslu
- Merki: Kransaskál, Marsípanterta, Pantið tímanlega, Stúdent, Stúdentaveisla, Tilefni, Útskrift, Útskriftarveisla, Þitt eigið tilefni