Marsípantertur

Skoðaðu úrvalið og pantaðu þína tertu. Hafðu í huga að gæði andlitsmynda á marsípani eru ekki þau sömu og myndir sem prentaðar eru á ljósmyndapappír. Marsipanið er gróft og ljóst að lit og því verða myndir alltaf grófari og liturinn ögn daufari en myndin sem þú sendir okkur til að setja á tertuna þína.
Best er að sækja Marsípantertu sama dag og til stendur að bera hana fram. Til að tryggja góð gæði er best að hafa Marsípantertuna í kassanum sem hún kemur í. Rétt er að benda á að ekki er ráðlegt að geyma þær úti þar sem þær þola ekki mikinn raka. Það er alltaf hætta á því að hitastig sveiflist sem hefur áhrif á gæði Marsípantertunnar.