Alltaf sígild og alltaf flott

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Ferming markar þau skemmtilegu timamót að unglingurinn á heimilinu kemst í fullorðinna manna tölu. Þetta þótti mikill áfangi og þykir enn, enda þótt ferming marki ekki lengur upphaf fullorðinsáranna hjá ungu fólki, eins og venjan var. Eitt hefur þó ekki breyst í tímans rás og það er stolt staða kransakökunnar á fermingarveisluborðinu. Með glæsta turnlögun og einstakar skreytingar ber kransakaka alltaf með sér einhvern einstakan hátíðarbrag. Þá er þetta augnkonfekt sem kakan er, ekki síðra í munni, þar sem hver biti bráðnar, stökkur að utan en svo mjúkur að innan.

Það allra skemmtilegasta við kransakökuna er þó, að hún bragðast sífellt betur eftir því sem við eldumst. Við tengjum mörg við, að fyrsti bitinn hafi verið aðeins öðruvísi á bragðið en við áttum barnung von á, en eftir því sem árunum fjölgaði og við fullorðnuðumst vann kransakakann á, enda bökuð úr úrvalshráefnum á borð við kransakökumarsipani (einnig nefndur kransakökumassi).

Þá eru lausu kransabitarnir sterkur leikur, bæði sem skraut og einnig til að drýgja kransakökuna með hliðsjón af fjölda gesta. Bitarnir eru fáanlegir í þremur mismunandi gerðum eða sem litlir kransabitar, kransblóm með dökkum hjúpi og kransblóm með jarðaberjum. Góðir hver um sig og alveg frábærir í bland við hvern annan.

Við minnum síðan á að panta tímanlega, svo að kransakakan sem fegrar fermingarveisluborðið ykkar verði örugglega eins og þú vilt hafa hana.

Kynntu þér pöntunar- og afgreiðslutíma Tertugallerís Myllunnar


Deila þessari færslu



← Eldri færsla