Einfaldaðu barnaafmælið með veitingum frá Tertugallerí

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Að fagna afmæli barnsins í fjölskyldunni er alltaf skemmtilegt og sannkallaður hápunktur ársins hjá barninu. Afmælisveislur gefa ættingjum og vinum líka tækifæri til að hittast, rifja upp góða tíma og endurvekja tengsl. Ef barnið er farið að bjóða í vina- eða bekkjarafmæli er einnig mikið fjör og krakkarnir njóta þess að leika sér í góðra vina hópi, hvort sem það er heima fyrir eða á öðrum stað.

Engin fyrirhöfn – súkkulaðikaka með mynd að eigin vali

Barnaafmæli eru þó stundum fyrirhafnarsöm fyrir foreldra og að mörgu að huga. Það þarf að ákveða veitingar, kaupa inn og loks elda og baka herlegheitin. Einnig eru margir með fallegar skreytingar sem annað hvort eru keyptar eða föndraðar ásamt blöðrum, kertum, dúkum og borðbúnaði. Þó að þetta sé skemmtilegt ferli hefur færst í aukana síðastliðin ár að foreldrar spari sér sporin og kaupi tilbúnar veitingar í veisluna. Það bæði auðveldar allan undirbúning og gefur foreldrum aukið færi á því að njóta með barni, vinum og ættingjum án þreytunnar sem fylgir miklum bakstri og eldamennsku.

Við hjá Tertugallerí sérhæfum okkur í glæsilegum veisluveigum. Við bjóðum meðal annars upp á úrval af tertum, en það er sérstaklega sniðugt að panta súkkulaðiköku með mynd fyrir barnaafmælið. Ef þú vilt auka enn frekar við glæsilegt veisluborð mælum við með marengstertunum okkar eða sætum bitum eins og litríkum kleinuhringjum. Til viðbótar bjóðum við upp á ljúffeng brauðsalöt og rúllutertubrauð sem hitað er í ofni með engri fyrirhöfn.

Nýbakað til að njóta samdægurs

Tertugallerí býður ljúffengar köku- og veisluveitingar á hagstæðu verði. Mikilvægt er að hafa hugfast þegar þú pantar, að allar kökur eru afgreiddar nýbakaðar. Þess vegna er alltaf best að sækja pantanir á pöntundardegi, þegar kakan er nýbökuð og fersk!

Pantaðu tímanlega

Við mælum eindregið með því að þú gangir frá pöntuninni tímanlega. Afgreiðslufrestur er 2-3 dagar hjá okkur og ef þú ætlar að panta fyrir helgi, þá þarftu að gera það fyrir kl. 14:00 á fimmtudegi.

Kynntu þér afgreiðslutíma Tertugalleríins nánar hér

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla