Frídagur verslunarmanna
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Frídagur verslunarmanna er haldinn fyrsta mánudag í ágúst ár hvert og ber því ekki alltaf upp á sama degi mánaðarins. Upphaflega var frídegi verslunarmanna komið á af Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur og var ætlaður starfsfólki verslana að danskri fyrirmynd.
Fyrst var haldið upp á frídag verslunarmanna í Reykjavík fimmtudaginn 13. september árið 1894. Var það eftir að kaupmenn allra stærri verslana í Reykjavík buðust til að gefa starfsmönnum sínum sérstakan frídag til að skemmta sér. Sá Verzlunarmannafélag Reykjavíkur um skemmtidagskrá þann dag sem það og gerði lengst framan af.
Ári seinna var haldið upp á daginn um miðjan ágúst og þriðja árið undir lok ágúst. Eftir það var haldið upp á daginn í byrjun ágúst uns árið 1931 að hann var ferstur sem fyrsti mánudagurinn í ágústmánuði og hefur verið svo síðan.
Í dag er frídagur verslunarmanna. Dagur sem flestir landsmenn kenna við stærstu fríhelgi ársins og njóta ýmist utan- sem innanbæjar sér til skemmtunar, afþreyingar eða afslöppunar. Við hjá Tertugalleríinu sendum verslunarfólki og öðrum landsmönnum kveðju á þessum frídegi verslunarmanna, megi hann nýtast vel til góðra verka!
Deila þessari færslu
- Merki: Frídagur verslunarmanna