Gleddu starfsfólkið í sumarbyrjun

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Mannauður er stærsti auður hvers fyrirtækis, um það þarf varla að fjölyrða. Ánægt starfsfólk er líklegra til að leggja meira á sig og vera umhugað um hag fyrirtækisins. Hvernig væri að gleðja starfsfólkið í sumarbyrjun með köku eða tertu frá Tertugalleríinu? Við bjóðum upp á frábært úrval af tertum af öllum stærðum og gerðum sem henta þínum vinnustað. Athugaðu að lokað er á sumardaginn fyrsta og því þarf að panta í tíma ef þú vilt gleðja starfsfólkið síðasta vetrardaginn eða á föstudeginum.

Við mælum með gómsætu skúffukökunum okkar og ekki er eplakökuramminn síðri, en hann er hægt að fá óskorinn eða skorinn í 40, 60 eða 80 sneiðar. Súkkulaðiterturnar eru alltaf óhemjuvinsælar og ekki að ósekju, þær eru einstaklega bragðgóðar á góðu verði og hægt er að fá á þær mynd sem hæfir hverju tilefni.

Það tekur okkur 2-3 sólarhringa að afgreiða pantanir á tertum undir venjulegum kringumstæðum. Afgreiðslutíminn getur verið lengri á álagstímum og í kringum stórhátíðir. Vertu því séður og pantaðu strax svo þú getir glatt starfsfólkið í sumarbyrjun.

Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →