Fagnaðu alþjóðlega frænku- og frændadeginum
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Alþjóðlegi frænku- og frænda dagurinn er mánudaginn 26. júlí nk., og er þessi skemmtilegi dagur tilvalin til að fagna því frændfólki sem standa okkur næst.
Frænkur og frændur eru skemmtileg skyldmenni. Þau eru yfirleitt eins og foreldrar, bara án reglana. Í gegnum tíðina hafa þau keypt óvæntar gjafir sem foreldrar okkar myndu yfirleitt ekki samþykkja, dekrað við þig, farið með þér í skemmtilegar ferðir og hafa verið stór hluti af stuðningsnetinu þínu í gegnum æskuna. Þess vegna er tilvalið að fagna frænkum og frændum á alþjóðlega frænku- og frændadeginum.
Gulrótarterta fyrir frænku
Það er sniðug hugmynd að gleðja uppáhalds frænku þína með dísætri gulrótartertu Tertugallerísins. Gulrótarterta er klassísk og ljúffeng terta sem sameinar sætt bragð og heilnæm hráefni. Hún er ekki aðeins vinsæl fyrir sitt ljúffenga og rjómakennda bragð heldur einnig fyrir þá einstöku áferð sem gulræturnar gefa. Þessi terta hefur lengi verið eftirlæti margra, bæði á veislum og sem daglegur eftirréttur.
Það sem gerir gulrótartertuna einstaka er hvernig gulræturnar bæta við raka og mýkt án þess að yfirgnæfa bragðið. Gulrætur eru náttúrulega sætar og gefa tertunni frábært jafnvægi milli sætleika og heilbrigðis. Þær eru einnig ríkar af A vítamíni, öðrum næringarefnum og trefjum, sem gerir kökuna að aðeins hollari kost en margar aðrar kökur.
Gulrótaterturnar okkar eru sívinsælar, því þær eru bragðgóðar og þétt áferðin fellur mörgum í geð. Hægt er að panta 15 manna gulrótartertu, en einnig í stærri sölueiningum og kemur tertan skorin í sneiðar og tilbúin beint á veisluborðið þitt. Hægt að skera tertuna í 40, 60 og 80 sneiðar.
Þar að auki bjóðum við upp á frískandi gulrótarbita með ostakremi, sem koma 40 stykki saman í kassa.
Frönsk súkkulaðiterta fyrir frænda
Við hugsum einnig um frænda þinn og teljum það vera frábær hugmynd að gleðja hann með okkar vinsælu frönsku súkkulaðitertu. Þessi þétta, mjúka súkkulaðiterta er einstaklega bragðgóð og er skreytt með ljúffengu súkkulaðigeli, ferskum bláberjum og jarðarberjum og er fyrir 15 manns.
Tertugalleríið gerir þér einfalt fyrir að panta veitingar hratt og vel fyrir alþjóðlega frænku- og frænda daginn. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn, því möguleikarnir eru nánast endalausir. Á vefsíðu Tertugallerísins finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft fyrir pöntunarferlið og ef frekari spurningar vakna getur þú alltaf haft samband við okkur í tölvupósti, símleiðis eða á Facebook. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, allt til að aðstoða þig á sem bestan máta.
Skoðaðu endilega úrvalið hjá okkur hér!
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!
Pantaðu tímanlega
Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantar tímanlega.
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.
Afhending og ábyrgð
Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.
Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.
Ef pöntun er einhverja hluta vegna ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.