Hafðu tertu frá Tertugalleríinu í haustfagnaði fyrirtækisins
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Hjá Tertugalleríinu eigum við tertur fyrir hin fjölbreyttustu tilefni. Um þetta leyti árs búum við okkur undir að kveðja sumarið og taka á móti haustinu og því er tilvalið að gera sér glaðan dag og fá sér tertu með föstudagskaffinu á kaffistofunni.
Hjá mörgum íslenskum fyrirtækjum hefur skapast skemmtileg hefð að gera sér dagamun á föstudögum og er þá oft keypt eitthvað góðgæti með kaffinu. Um þessar mundir ættu líka nær allir að vera komnir úr sumarfríum og tilveran hjá flestum að vera að falla í fastar skorður.
Vinnufélagar skiptast gjarnan á sögum úr fríinu og eru þær oft býsna skondnar enda margt brallað þegar fjölskyldan fer í sumarfrí. En líkt og annað tekur sumarfríið enda og við taka hin daglegu verkefni.
Það er því upplagt við upphaf haustsins að gera sér glaðan dag í kaffitímanum og gæða sér á ljúffengri tertu frá Tertugalleríinu.
Kíktu á úrvalið okkar og pantaðu gómsæta og girnilega tertu frá Tertugalleríinu.
Deila þessari færslu
- Merki: fyrirtækjatertur