Fagnaðu brúðkaupsafmælinu með tertu frá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Skoðaðu fallegar brúðartertur hjá TertugalleríinuVið hjá Tertugalleríinu höfum stundum fjallað um brúðkaup í fréttunum hjá okkur enda eigum við úrval af brúðkaupstertum fyrir hin nýgiftu hjón. Þegar haldið er upp á stóra viðburði í lífinu, líkt og brúðkaup, er tilvalið að fylgja því eftir og halda einnig uppá brúðkaupsafmælið en þau hafa hvert sitt nafn fyrstu 15 árin og svo á fimm ára fresti.

Eins og flestir vita er fyrsta brúðkaupsafmælið kallað pappírsbrúðkaup. Fimm ára brúðkaupið svo er kallað trébrúðkaup, það tíu ára tinbrúðkaup en hér má sjá lista yfir heiti brúðkaupsafmæla.

Þegar hjón hafa náð þeim áfanga að hafa verið gift í 25 ár er talað um silfurbrúðkaup, gullbrúðkaup við 50 ára aldursmarkið og svo loks gimsteinabrúðkaup fyrir þá sem ná því að hafa verið gift í 75 ár.

Það er góður siður að halda upp á giftingardaginn sinn og velja margir að gera vel við sig í mat og drykk. Þar sem brúðkaupsafmælin eru einnig kennd við ýmsa hluti eru margir sem gefa gjafir tengt afmælinu eins og gjafakort á pappírsbrúðkaupinu, sængurföt úr bómull á bómullarafmælinu og jafnvel eitthvað pínulítið djarft á leðurafmælinu.

En hvað svo sem fólk ákveður að gera á brúðkaupsafmælinu þá er upplagt að fá sér tertu frá tertugalleríinu en hjá okkur færðu tertur sem henta öllum tilefnum og það á svo sannarlega einnig við um brúðkaupsafmælið.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →