Nýjung – vegan smurbrauð og vegan snittur

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við hjá Tertugallerí kynnum til leiks tvær nýjungar í vöruúrvali okkar – vegan snittur og vegan smurbrauð! Við erum afar stolt af vaxandi vegan úrvali okkar en bæði brauðið, hummusinn og pestóið er gert frá grunni af bakarameisturum okkar. Nú er hægt að fá tvær tegundir af vegan brauðtertum, þrjár tegundir af vegan snittum og tvær tegundir af vegan smurbrauðum. Því er vægast hægt að slá til vegan veislu með veitingum frá Tertugallerí.
Snitturnar, smurbrauðin og brauðterturnar eru sérstaklega hentugar fyrir fundinn, hádegismatinn og afmælið þó að það þurfi ekkert tilefni til að panta og smakka þessar vegan dásemdir.

Hvítlauks hummus smurbrauðin fást í heilum og hálfum sneiðum og eru á ljúffenga malt brauðinu okkar með grænu pestó, hvítlauks hummus, grænkáli, valhnetum, döðlum, þurkuðum apríkósum, sólþurkuðum tómötum, papriku, kapers, vínediki, gúrku, rauðlauki og salti og pipar.

Tómat og basil hummus smurbrauðin fást í heilum og hálfum sneiðum og eru borin fram á malt brauðinu okkar með rauðu pestó, tómat og basil hummus ásamt rauðlauk, lambhagasalati, vínberjum, ólífum, ferskri steinselju, salti og pipar.

Tómat og basil snittan okkar er algjört lostæti en hún er borin fram á maltbrauði með tómat og basil hummus ásamt rauðu pestói, tómötum, rauðlauk, lambhagasalati, vínberjum, grænum ólífum, steinselju, salti og pipar.

Hvítlauks hummus snittan okkar er borin fram á maltbrauði með grænu pestói, þurkuðum apríkósum, sólþurkuðum tómötum, gúrkum, lambhaga salati, döðlum, rauðlauki, salti og pipar.


Pantaðu tímanlega
Allar veitingarnar frá Tertugalleríinu eru afgreiddar ferskar. Afgreiðslufrestur undir venjulegum kringumstæðum er 2-3 sólarhingar. Hafa ber í huga að afgreiðslufresturinn getur lengst með skömmum fyrirvara og lokast fyrir þá daga í pöntunardagatalinu. Þegar gengið er frá pöntun þarf að velja á hvaða klst. er sótt til okkar í Tertugalleríið í Skeifuna 19.

Til að fá vöruna afhenta á laugardegi eða sunnudegi þarf að panta í síðasta lagi fyrir klukkan 16:00 á fimmtudegi, með fyrirvara um að ekki sé búið að loka fyrir pantanir.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →