Pantaðu súkkulaðitertu fyrir föstudagskaffið á vinnustaðnum þínum!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við hjá Tertugalleríinu viljum auðvelda þér fyrirhöfnina í undirbúningnum að föstudagskaffinu í vinnunni. Við bjóðum upp á allskyns tertur sem henta vel í kaffitímanum en mælum þó sérstaklega með súkkulaðitertunum okkar því góð súkkulaðiterta slær yfirleitt alltaf í gegn.

Súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu eru sígildar og af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm), 30 manns (40,4 x 29cm) og 60 manns (58 x39cm). Þá er jafnvel hægt að sérpanta enn stærri tertur, t.d. fyrir fyrirtæki og félög sem vilja halda upp á stærri viðburði.

Til að gera súkkulaðitertuna persónulegri og jafnvel skemmtilegri er hægt að prenta mynd að eigin vali til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á súkkulaðitertuna. Það væri t.d. tilvalið að setja fyrirtækja lógó á súkkulaðitertuna. Súkkulaðiterturnar okkar hafa bragðgóðan súkkulaðitertubotn með súkkulaði, skreytt með M&M, hlaupböngsum og brúnu smjörkremi á kantinum.

20 manna, þriggja laga Ameríska súkkulaðitertan er algjörlega sígild og er tilvalin við nánast hvaða tækifæri sem er. Óhætt er að mæla með henni fyrir þá sem vilja klassíska súkkulaðitertu.

Franska súkkulaðitertan okkar er þétt, mjúk súkkulaðiterta sem er einstaklega bragðgóð og er skreytt með ljúffengu súkkulaðigeli, ferskum bláberjum og jarðarberjum og er fyrir 15 manns. Hún hentar vel fyrir vandláta. Franska súkkulaðikakan hentar öllum tilefnum en hún hentar sérstaklega vel í kaffitímanum. Nýttu tækifærið og sláðu í gegn með lítilli fyrirhöfn með þessum frábæra franska leynigest í næsta kaffitíma á vinnustaðnum.

Við hjá Tertugalleríinu bjóðum líka upp á allskyns fleiri veisluveigar sem henta vel í föstudagskaffinu. Þú finnur líka önnur fjölbreytt og ljúffeng smástykki sem myndu henta vel með súkkulaðitertunni. Við mælum sérstaklega með mini möndlukökum sem koma 20 stykki saman í kassa, gulrótar- eða skúffubitum sem koma 40 stykki saman í kassa og svo loks litlum kleinuhringjum með karamellu glassúr og nammi eða brúnum glassúr og nammi sem koma 30 stykki saman í kassa.

Smelltu hér og skoðaðu fjölbreytt úrval okkar af veisluveigum!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi. Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →