Það er tilvalið að gleðja með marengstertu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það er fátt betra en að gleðja þá sem manni þykir vænt um með ljúffengri  marengstertu og er hún fullkominn kostur þegar þú vilt bjóða upp á eitthvað einstakt og eftirminnilegt. Léttleikinn og sæta bragðið af marengsinum ásamt mjúka rjómanum og fersku berjunum eða ávöxtunum gera þessa tertu að algjörum veislurétti sem allir njóta og gleðjast yfir .

Marengsterta er ljúffeng með einstakri áferð og falleg að sjá. Hún er tilvalin fyrir hvers kyns tilefni, hvort sem það er afmæli, jólaboð, brúðkaup eða bara afslappað kaffiboð með fjölskyldu og vinum.

Marengstertur Tertugallerísins gleðja

Við hjá Tertugalleríinu mælum með Marengstertum okkar en þær þykja sérstaklega hentugar fyrir þá sælkera sem elska stökka áferð sem bráðnar í munni og veitir sælutilfinningu. Við bjóðum upp á þrjár mismunandi bragðtegundir af marengsbombum, hver annarri ljúffengari.

Marengsbomban okkar er einstaklega falleg púðursykurmarengsterta með rjómafyllingu. Skreytt með marengsbitum, karamellu, súkkulaði og ferskum berjum. Marengsbomban fæst í 15 og 30 manna stærðum. Við hjá Tertugalleríinu heitum þér því að hún mun slá í gegn!

Hrísmarengsbomban okkar er 15 manna bomba úr tveimur lögum af púðursykursmarengs með hrískúlum og vanillurjóma með kokteilávöxtum á milli. Hrísmarengsbomban er síðan hjúpuð með rjómasúkkulaðiganas og toppuð með Nóa kroppi. Þessi bomba er algjör hamingju hvellur hjá þeim sem elska Nóa Kropp!

Banana- og kókosbomban er 15 manna marengsveisla. Þessi ljúffenga terta er í senn stökk og mjúk. Mýktin kemur úr kókossvampbotni með súkkulaði, rjóma og bönunum meðan stökki hlutinn inniheldur mulinn púðursykursmarengs með súkkulaðiganas. Þegar kemur að vinsældum banana- og kókosbombunnar á veisluborðinu skiptir aldurinn engu máli!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantaðu tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímanlega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar þínar. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →