Við aðstoðum þig við undirbúning fyrir stóra daginn

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það tímabilið sem einkennir aðdragandann að stóra deginum getur valdið auka álagi. Við hjá Tertugalleríinu teljum mikilvægt að hefja undirbúning tímanlega. Því meiri tími sem lagður er í undirbúninginn því betra verður skipulagið. Við vitum líka að það er alltaf gott að skipuleggja sig fram í tímann og fá fyrir vikið að njóta í ró og næði þegar nær dregur að ykkar stóra degi.

Þar sem Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir brúðkaupsveisluna, viljum við endilega fá að liðsinna tilvonandi brúðhjónum við undirbúninginn. Með okkar aðstoð ná tilvonandi brúðhjón líka að njóta aðdragandans að stóra deginum.

Brúðartertan sem fullkomnar veisluborðið

Það er varla til mikilvægari terta en brúðartertan. Brúðartertan kórónar borðhaldið og gestir bíða spenntir eftir að brúðhjónin skeri saman fyrstu sneiðina og taki þannig eitt fyrsta skrefið saman í nýju hjónabandi. Brúðartertur Tertugallerísins eru gæðatertur sem gleðja bæði augað og bragðlaukana.

Við hjá Tertugalleríinu bjóðum upp á dásamlegar brúðartertur með þrenns konar útlitsgerðum sem eru Lafði DíanaLafði Kate og Lafði Grace. Brúðarterturnar eru allar gerðar úr súkkulaðitertubotni með unaðslegri súkkulaði-mousse fyllingu, hjúpaðar með hvítum sykurmassa og að lokum skreyttar með sykurblómum, ferskum berjum og súkkulaðivindlum.

Tilvalið með fordrykknum eða brúðartertunni sjálfri

Kransakökurnar okkar eru alltaf sígildar samhliða brúðartertunni eða með fordrykknum í veislunni og við bjóðum upp á nokkrar útfærslur af kransakökunni. Við erum með ljúffenga og fallega skreytta sjö hringja kransakörfu fyrir 15 manns, eða öðruvísi 20 manna kransaskál skreytta með ferskum berjum og súkkulaði. Svo er það sígilda og reisulega 30 manna kransakakan sem skreytt er með hvítum glassúr, ferskum berjum og súkkulaðiskrauti. Auk þess bjóðum við upp á litla kransabita sem koma 40 stykki saman á bakka.

Okkar ljúffengu og litríku makkarónukökur eru frábær sætir smábitar og geta skreytt hvaða veisluborð sem er. Makkarónukökurnar koma 35 stykki saman á bakka og eru með sítrónu-, saltkaramellu-, hindberja-, vanillu-, súkkulaði-, pistasíu-, kaffi- eða ástaraldinbragði.

Þar að auki erum við með frábært úrval af smástykkjum sem slá alltaf í gegn.

 

Ferskt bakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig bjóðið þið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar veisluveigar eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímanlega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

ATH! panta þarf brúðartertur með a.m.k. viku fyrirvara. Á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →