Aðventan þín!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Margir eru farnir að taka forskot á jólagleðina með því að föndra saman jólaskraut, hengja upp jólaljósin og njóta samverunnar. Sumir eru búnir að setja upp jólatréð og hafa nú þegar stigið léttan dans í kringum jólatréð. Við hjá Tertugalleríinu erum í jólaskapi og hlökkum til aðventunnar sem er handan við hornið.

Landsmenn eru duglegir að gleðja hvern annan með því að skreyta fyrr og lýsa upp skammdegið með gleðileg og litrík jólaljós. Jólagleðin er farin að gera vart við sig út um allan bæ og til að njóta er stórfínt að fara með fjölskylduna í bíltúr eða fara í göngutúr til að skoða öll jólaljósin.

Aðventukaffi

Það eru margir sem bjóða í aðventukaffi á þessum árstíma og það er frábært tækifæri til að hitta vini og vandamenn í aðdraganda jólanna. Við hjá Tertugalleríinu gerum þér einfalt fyrir að panta veisluveigar hratt og vel fyrir hvaða tilefni sem er þannig að þú getur notið tímans betur með þínu fólki.

Á vefsíðu Tertugallerísins finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft fyrir pöntunarferlið og ef frekari spurningar vakna getur þú alltaf haft samband við okkur í tölvupósti, símleiðis eða á Facebook. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, allt til að aðstoða þig á sem bestan máta.

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantaðu tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantir tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →