Pantaðu súkkulaðiterta með íslenska fánanum fyrir 17. júní
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Núna styttist í þjóðhátíðardaginn 17. júní og hafa mikil hátíðarhöld fylgt þessum degi. Hjá mörgum er venjan sú að vinir og vandamenn koma saman í þjóðhátíðarkaffiboð, fara í skrúðgöngu eða heimsækja fjölbreytta og skemmtilega hátíðardagskrá víðs vegar um landið.
Þess vegna könnumst við flest öll við þjóðhátíðarkaffiboð og viljum við hjá Tertugalleríinu auðvelda þér fyrirhöfnina með gott úrval af ljúffengum og bragðgóðum veisluveigum.
Það sem er tilvalið fyrir þjóðhátíðarkaffið og slær yfirleitt alltaf í gegn, hjá bæði yngri og eldri kynslóðinni, er okkar ljúffenga súkkulaðiterta og flauelsmjúku bollakökur með íslenska fánanum.
Góð súkkulaðiterta með nammi er vinsæl hjá yngri og eldri kynslóðinni og kætir ávallt bragðlaukana. Súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu eru sígildar, henta flestum tilefnum og eru af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm), 30 manns (40,4x29cm) og 60 manns (58x39cm). Þá er jafnvel hægt að sérpanta enn stærri tertur.
Til að gera súkkulaðitertuna þína persónulegri er hægt að prenta mynd að eigin vali til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á súkkulaðitertuna. Það væri til dæmis frábær hugmynd að láta prenta mynd af íslenska fánanum fyrir 17. júní kaffið. Súkkulaðiterturnar okkar hafa bragðgóðan súkkulaðitertubotn með súkkulaði, skreytt með M&M, hlaupböngsum og brúnu ljúffengu smjörkremi á kantinum.
Bollakökurnar eru með karamellubragði, hvítu smjörkremi og marsípanmynd með íslenska fánanum. Þær eru eins ljúffengar og þær eru glæsilegar og koma 8 saman í öskju.
Það er líka tilvalið að bjóða upp á klassískar og bragðgóðar brauðtertur, sérstaklega á þjóðhátíðardaginn. Við hjá Tertugalleríinu bjóðum upp á þrjár mismunandi tegundir af brauðtertum með skinku-, túnfisk- og rækjum. Það er hægt að fá brauðterturnar 16-18 manna, eða 30-35 manna.
Kítku við á vefsíðu Tertugallerísins og skoðaðu fjölbreytt úrval veisluveiga fyrir þinn þjóðhátíðarkaffiboð. Mundu bara að panta tímanlega!
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!
Pantaðu tímanlega
Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar súkkulaðitertur á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímalega.
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Afhending og ábyrgð
Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.
Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.
Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.
Deila þessari færslu
- Merki: 17. júní, Bollakaka með íslenska fánanum, Brauðterta með rækjum, Brauðterta með skinku, Brauðterta með túnfisk, súkkulaðiterta með íslenska fánanum