Fréttir — Bleikar tertur
Bleikur október er hafin
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Október er bleikur mánuður og þá fer fram árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan. Átakið hefur verið haldið í meira en tíu ár og hefur bleiki liturinn ávallt verið í hávegum hafður í tengslum við það. Til að marka upphaf Bleiku slaufunnar 2024, blæs Krabbameinsfélagið til opnunarhátíðar í Háskólabíói í dag 1. október þar sem bleik stemmning verður allsráðandi. Miðvikudaginn 23. október nær átakið hámarki en þá er Bleiki dagurinn. Þann dag biður Krabbameinsfélagið alla landsmenn um að vekja athygli á átakinu og klæðast einhverju bleiku. Hönnuður Bleiku slaufunnar í ár er Sigríður Soffía Níelsdóttir (Sigga Soffía), en...
Tertugalleríið og viðskiptavinir þess styrkja árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Október var bleikur mánuður hjá Tertugalleríinu. Tertugalleríið safnaði 479.440 krónum til handa Bleiku slaufunni, sem er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum. Fyrirkomulag söfnunarinnar var á þann veg að í október bauð Tertugalleríið viðskiptavinum sínum að panta bleikar tertur, bleikar bollakökur og bleikar Mini möndlukökur og rann 15 prósent andvirði til Bleiku slaufunnar. Við hjá Tertugalleríinu erum gífurlega ánægð með söfnunina og fyrir viðtökurnar frá viðskiptavinum okkar. Við söfnuðum þetta í sameiningu til mikilvægs málefnis. Fjárhagslegur stuðningur skipulagsheilda og einstaklinga við árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands er mikilvægt framlag í baráttunni við krabbamein og undirstaða...