Fréttir

Veldu bleikt fyrir Bleiku slaufuna

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Veldu bleikt og taktu þátt í að styrkja bleiku slaufuna. Í tilefni af bleikum október býður Tertugallerí Myllunnar bleika súkkulaðitertu, bleikar bollakökur, litla bleika kleinuhringi og bleikar mini möndlukökur. Með kaupum á þessum dásamlega bleiku kökum styður þú árlegt söfnunarátak Krabbameinsfélags Íslands, en 15% af verði þeirra rennur til Bleiku slaufunnar.     Bleiku terturnar eru með ljúffengum og þéttum súkkulaðibotni, skreyttar fagurbleiku kremi á hliðunum og með mynd af Bleiku slaufunni gerðri úr gæðamarsipani. Bleiku bollakökurnar eru ljúffengar með bleiku kremi og koma 16 stykki saman í kassa. Litlu bleiku kleinuhringirnir eru skreyttir jarðaberja sykurperlum og koma í 30 stykkja einingum á...

Lestu meira →

Einfaldaðu barnaafmælið með veitingum frá Tertugallerí

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Að fagna afmæli barnsins í fjölskyldunni er alltaf skemmtilegt og sannkallaður hápunktur ársins hjá barninu. Afmælisveislur gefa ættingjum og vinum líka...

Lestu meira →

Sannkallað augnakonfekt

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Fallegar kökur á veisluborði eru sannkallað konfekt fyrir bæði augað og bragðlaukana. Þegar kemur að því að stilla upp veitingum á borðinu er margt sem getur stuðlað að því að skapa ógleymanlega veislu fyrir gestina. Vel valdar og útfærðar kökur geta orðið miðpunktur veislunnar, með þeim hátíðleika og gleði sem þeim fylgir fyrir bæði þig og gesti þína.  Ímyndaðu þér fallega skreytta marengstertu með ferskum ávöxtum eða litríkar makkarónur sem raðað er á spegil sem endurspeglar ljósið í herberginu. Þessar velgjörðir eru ekki aðeins dásamlega bragðgóðar heldur líka fallegar á að líta og gera veisluborðið þitt eftirminnilegt. Smáatriðin skipta máli......

Lestu meira →

Sætir bitar beint á borðið

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Okkur langar að vekja athygli á að þrenns konar sætir bitar eru nú fáanlegir í einu. Alveg tilvalin eining sem er tibúin beint á borðið. Sætu bitanir eru ekki bara bragðgóðir heldur eru þeir einnig algjört augnayndi. Á bakkanum eru tíu kókóstoppar, tíu súkkulaðibitakökur og tíu vatnsdeigsbollur. Kynntu þér nánar þessu sætu snilld sem er tilvalin fyrir nánast hvaða tilefni sem er, ferminguna, afmælið eða veisluna eða einfaldlega sem handhægur eftirréttur. Við minnum svo á að best er að panta tímanlega, þar sem afgreiðsla nýrra pantana lokar óhjákvæmilega um leið og viðkomandi dagur er uppbókaður.  

Lestu meira →

Alvöru brauðterta best af öllu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Brauðtertur hafa smám saman verið að endurheimta fyrri virðingarsess, en þær nutu feikilegra vinsælda hér á árum áður eða um það leyti sem amma var ung. Þetta litríka kaffimeðlæti þykir orðið ómissandi á ekta fermingarhlaðborð, þar sem góð brauðterta eykur ekki aðeins fjölbreytileika borðsins heldur lyftir hún því einnig upp í samspili við sætari hluta þess. Það skemmtilega við þetta er að mörgum finnst kökurnar bragðast jafnvel enn betur í bland við þennan ósæta valkost. Brauðterturnar hjá Tertugalleríi Myllunnar eru frá 16 og upp í 35 manna og fást í þremur mismunandi útfærslum, með skinku, rækjum eða túnfiski. Þá eru...

Lestu meira →