Fragnaðu deginum með þínu besta frændfólki
Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann
Alþjóðlega frænku- og frændadaginn ber upp föstudaginn 24. júlí í ár. Þessi skemmtilegi dagur er alveg tilvalin til að fagna því frændfólki sem stendur okkur næst og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að njóta dýrindis köku úr Tertugalleríi Myllunnar.
Frænkur og frændur eru skemmtileg skyldmenni. Þau eru stór hluti af stuðningsnetinu okkar og hafa mörg hver stutt okkur með ráð og dáð á æskuárunum. Alþjóðlega frænku- og frændadeginum er einmitt ætlað að gefa okkur tilefni til að hugsa vel til þessara mikilvægu skyldmenna okkar, hafa samband og gera eitthvað skemmtilegt saman.
Það gæti sem dæmi verið sniðug hugmynd að gleðja uppáhalds frænkuna eða frændann þinn með dísætri og ómótstæðilega góðri gulrótartertu úr Tertugalleríinu.
Gulrótarterta er klassísk og ljúffeng terta sem sameinar sætt bragð og heilnæm hráefni. Hún er ekki aðeins vinsæl fyrir sitt ljúffenga og rjómakennda bragð heldur einnig fyrir þá einstöku áferð sem gulræturnar gefa. Þessi terta hefur lengi verið eftirlæti margra, bæði á veislum og sem daglegur eftirréttur.
Það sem gerir gulrótartertuna einstaka er hvernig gulræturnar bæta við raka og mýkt án þess að yfirgnæfa bragðið. Gulrætur eru náttúrulega sætar og gefa tertunni frábært jafnvægi milli sætleika og heilbrigðis. Þær eru einnig ríkar af A vítamíni, öðrum næringarefnum og trefjum, sem gerir kökuna að aðeins hollari kost en margar aðrar kökur.
Gulrótaterturnar okkar eru sívinsælar, því þær eru bragðgóðar og með þétta áferð. Hægt er að panta frá 15 manna gulrótartertu og upp í mun stærri sölueiningar.
Þar að auki bjóðum við upp á frískandi gulrótarbita með ostakremi, sem koma 40 stykki saman í kassa.
