Tjáðu ást þína með dýrindis makkarónum
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Rómantíkin er frönsk að uppruna. Frakkar eru í það minnsta þeirra skoðunar og að háborg ástarinnar sé engin önnur en Parísarborg. Með hliðsjón af þeim mörgu elskendum sem flykkjast til Parísar ár hvert kann að vera eitthvert sannleikskorn í þessu hjá þeim.
Makkarónur eru eitt af þjóðartáknum og stolti Frakka og fátt er því meira við hæfi á sjálfan Valentínusardaginn en þetta fágæta hnossgæti sem skartar öllum ástarlitum regnbogans. Svo er bara eitthvað svo munaðarfullt við þær.

Tertugalleríið býður yndisaukandi makkarónur, 35 stykki saman á bakka með sítrónu-, saltkaramellu-, hindberja-, vanillu-, súkkulaði-, pistasíu- og kaffibragði og svo að sjálfsögðu einnig með ástaraldinbragði. Skelltu í eina pöntun hjá okkur fyrir fimmtudaginn 12. febrúar nk. og komdu ástinni þinni á óvart á Valentínusardaginn og tjáðu ást þína með dýrindis makkrónum.